Ég held ég sé alveg búinn að ná mér í bakinu. Enn dáldið stirður en ekkert sem kemur í veg fyrir að ég geti spilað. Tók góða músíkalska æfingatörn í kvöld í rúmar 2 klst. Það bættist við hinar 3 klst. sem ég var búinn að spila fyrr um daginn. Ekki amalegt það fyrir hálf-farlama básúnudreng.
Ég náði að fara vel í gegnum öll stykkin og ég kann núna bæði Gröndahl og Saint-Saens utanað. Ivan bannaði mér að spila Bach fantasíuna utan að og það er bara tímaspursmál hvenær ég verð búinn að læra Sönginn til Lottu.
En nú ætti maður að skella sér í sturtu og raka sig. Er búinn að safna góðu 3ja daga skeggi á tveimur dögum.
ble
Tuesday, May 8, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Þú ert sannur karlmaður! -
Post a Comment