Friday, May 25, 2007

Reykjavík

Föstudagur er hálfnaður. Aðgerðinni lauk fyrir rétt tæpum sólarhring. Án efa átakamesta aðgerð sem ég hef lent í.

Ég var að sjálsögðu deyfður en læknaliðið fór nú ekkert alltof mjúkum höndum með mann, en það er víst venjan þegar verið er að fjarlægja tennur.

Ég missti af tónleikum LR í kjölfarið. Bæði dofinn og slefaði blóði.

Útskriftarveisla litla bróðurs verður á morgun. Úff, maður er nú orðinn gamall þegar litli bróðir manns er kominn með stúdentspróf.

Einn af fylgifiskum aðgerðarinnar er sá að ég má ekki vera á föstu fæði í minnst viku. Allt er fljótandi eða maukað. Það er verulega pirrandi. Líkaminn kallar á nautasteik en verður að láta sér nægja hafragraut.

Til að bæta ofan á vesæld mína er megavika Domino´s í gangi núna. Einmitt þegar ég get ekki borðað pizzur.

En það er nú samt fínt að vera heima og er ég þakklátur fyrir að hafa ákveðið að koma heim í stað þess að freistast til að fara í þessa aðgerð úti í Amsterdam.

4 endajaxlar voru teknir þannig að ég þarf ekki að hugsa meira um þá það sem eftir er. Það er ákveðinn léttir.

Mér líður miklu betur en ég hafði þorað að vona. Ég var búinn að heyra þvílíkar hryllingssögur. Það er nú langt í að ég geti spilað á básúnuna ennþá en ég kvarta ekki yfir þessu.

Eina sem ég kvarta reyndar yfir, í hljóði, er það að ég er alltaf svangur. Maður mettist ekki neitt á þessum maukaða mat og bollasúpum. Ég reyndi að fá pabba til að fara á KFC og reyndi að koma honum í skilning um að grillaður kjúklingur væri það mjúkur undir tönn að það myndi ekki reyna mikið á tennurnar. Hann þvertók fyrir það og ég horfi fram á eitthvað jukk í matinn.

Staðfest, það verður jukk í matinn. Hakk í brúnni sósu og kartöflumús úr pakka. Kannski það besta í stöðunni en engin nautasteik.

En jæja,

No comments: