Sunday, May 20, 2007

Barca!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Uppdópaður fór ég á barinn til að horfa á síðari hálfleik í leik Recreativo og Real Madrid og allan leik Atletico Madrid-Barcelona. Ég varð fyrir smá vonbrigðum þegar Roberto Carlos skoraði á síðustu mínútu leiksins og tryggði RM þrjú dýrmæt stig í titilbaráttunni. Sá pirringur var þó fljótur að taka enda þar sem Barcelona gerði sér lítið fyrir og vann 6-0 á útivelli.

Ég hef alltaf sagt að þegar Barcelona spilar vel þá er ekkert lið sem getur haldið við þá. Þvílík veisla fyrir augað. Eto´o, Messi, Ronaldinho, Deco, Xavi, Iniesta og Eiður spiluðu allir frábærlega þegar þeir voru inná. Mér fannst mjög gaman að sjá að Rijkard setti Eið inná miðja miðju þegar hann skipti honum inná fyrir Xavi. Eiður þakkaði pent fyrir sig og lagði upp mark Iniesta. Hnitmiðuð sending hans splundraði vörn andstæðinganna og Iniesta var einn á auðum sjó en sendi á Eto´o sem sýndi mikinn liðsanda og renndi boltanum aftur á Iniesta sem lagði boltann snyrtilega í netið.

Mörkin hefðu hæglega getað orðið fleiri en með þessari frammistöðu sýndu Barcelona hvers þeir eru megnugir.

Það eru líkur á að ég komist til Íslands í aðgerðina. Það verður óneitanlega miklu betra en að húka hér í Amsterdam ófær um að gera nokkurn skapaðan hlut.

Tími kominn fyrir næsta lyfjaskammt,

2 comments:

Anonymous said...

Ef básúnan bregst er alltaf hægt að snúa sér að íþróttafréttamennskunni!

Anonymous said...

Good for people to know.