Maður verður að fá svona spennandi leiki oftar. Ég var algjörlega búinn á því eftir leikinn í gærkvöldi og steinrotaðist um klukkan 2. Og vaknaði klukkan korter yfir 12. Svaf í tæpar 10 klst í einum spretti. Þvílík sæla.
Í kvöld er svo annað eins.
Ég er búinn að venjast því að leikirnir séu svona seint á kvöldin. Meistaradeildarleikirnir byrja korter í níu að hollenskum tíma. Sumir leikir í spænsku deildinni byrja klukkan tíu. Leikirnir eru það seint að það er ekkert hægt að gera nema hanga í tölvunni eða lesa eða fara í göngutúr að þeim loknum.
Fótboltaleikir eiga það til að eyðileggja heilan dag fyrir manni. Þess vegna er best að hafa þá eins seint og mögulegt er.
Mourinho er nú engum líkur. Hann hélt því fram að Chelsea liðið hefði verið besta liðið á vellinum í gærkvöldi. Hann hefur nú greinilega bara horft á síðari hluta framlengingarinnar. Liverpool réð 80% af leiknum. Og auðvitað þurfti hann að gera lítið úr sigri Liverpool með því að benda á það að Liverpool væri bara að keppa í einni keppni en Chelsea í þremur. Það er rétt, Liverpool á bara séns á einum verðlaunum í ár en ef Liverpool hefði það fjármagn sem Chelsea er með þá væri nú allt önnur saga í gangi.
Ég ætla að fara að hita mig upp.
Wednesday, May 2, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment