Saturday, February 16, 2008

Garg

Var að fá þær ömurlegu fréttir að ég eigi að spila á tónleikum á morgun með CvA-Brass, í Texel, hef ekki hugmynd um hvar það er. Fékk póst rétt áðan frá Raymond þar sem hann segir mér frá þessu, hann vill að básúnukvartettinn spili eitt verk og svo þarf hann að fá mig til að spila í 3 öðrum verkum með CvA-Brass. Hann segist hafa beðið Johan að láta okkur vita um þetta en ég hef ekki heyrt orð. Það liggur eiginlega við að ég bara segist vera búinn að bóka mig í annað, það er algjörlega óásættanlegt að fá að vita það daginn áður að maður eigi að spila á tónleikum.

Fyrir utan það er ótrúlega pirrandi að ég hafi ekki verið valinn í CvA Brass til að fara til Chicago en síðan er einhvern veginn búist við því að ég sé alltaf tilbúinn til að spila með þeim þegar á þarf að halda. Gjörsamlega óþolandi.

Marlies er að koma í mat í kvöld, ansi stressandi, er ekki beint vanur að elda fyrir grænmetisætur. Og nú bætist við þetta leiðindamál. Jæja, verð að koma þessu út úr hugsanagang mínum og byrja að taka til, svo þarf ég að ákveða hvað ég eigi að elda og versla í matinn.

Christian Lindberg varð 50 ára í gær, hann sagði mér að ég hefði verið sá fyrsti til að óska honum til hamingju, enda ekki margir sem vakna klukkan fjögur að morgni.

Jæja, ég bið ykkur að afsaka þetta fúla blogg, reyni að bæta það upp síðar, þó eitthvað svakalega merkilegt þurfi að gerast til þess að ná mér upp úr þessu þunga skapi.

2 comments:

Anonymous said...

er tad lasagna?

Anonymous said...

Ohhhhh - synist Texel vera EYJA ... verdum ad heyra hvernig tetta for allt saman ...