Wednesday, February 6, 2008

Greining

Hélt áfram með greiningarskýrslu mína í morgun. Kláraði úrvinnsluna. Ætla að vinna þetta bara jafnt þétt. Það er núna akkúrat vika þangað til fyrirlesturinn er og ég hef nægan tíma.

Mig dreymdi dáldið undarlega í nótt. Ég var eins og oft undanfarið fastur inní Star Trek þætti, en þetta var meira eins og martröð. Stjörnuflotinn var búinn að missa alla siðgæðisvitund og ég þurfti að horfa uppá hvert mannréttindabrotið á fætur öðru, ég get ekki neitað að ég var ansi feginn þegar ég vaknaði.

Þarf að endurnýja kókbirgðir mínar. Búðin opnar eftir 3 tíma held ég, tek ekki sénsinn á að hún opni klukkan 8. Bý í úthverfi þar sem lífsrytminn er hægari en gengur og gerist í miðborginni.

Ég eldaði mér í gærkvöldi bakaðan kjúkling með sætri chilli sósu og kartöflum plús salati. Mjög gott bara, kjúklingurinn var fullkominn. Mér tókst reyndar ekki að ná fram húð á kvikyndið, en það getur verið vegna þess að hann er aðeins of húðflettur af niðurlenskum slátrurum.

Er að leggja höfuðið í bleyti hvað ég ætti að galdra fram í kvöld. Eggjakaka með beikoni, löðrandi í sírópi hljómar aðeins of vel, en kannski betra að geyma það til betri tíma.

Það eru of margar grænmetisætur í heiminum.

2 comments:

Anonymous said...

Setja á GRILL síðasta kortérið - og allt í botn!

Ari Hrodmarsson said...

Það er ekki grill fítus á ofninum mínum, bara ein stilling. Veit ekki einu sinni hvernig á að kalla hana.