Sunday, February 24, 2008

Valborg

Í dag gerðist sögulegur atburður. Ég hitti loksins Valborgu! Það er tæpt ár að ég held síðan ég kynntist henni á netinu og við erum nærri búin að spjalla saman daglega síðan þá. Við höfum ætlað okkur að hittast áður en aldrei orðið af því.

Ég fór í mat til hennar og vinkonu hennar, Helgu, og var það bara mjög notalegt. Ég verð samt að játa að ég er í nokkru spennufalli eins og er. Það tekur á að hitta einhvern sem maður þekkir svo vel í fyrsta skipti, en ég veit sem er að þetta var ekki í síðasta skiptið sem ég mun hitta þessa frábæru vinkonu mína.

Mér leiðist alveg svakalega í þessu spennufalli. Ég held ég barasta fari að sofa. Klukkan eiginlega orðin aðeins of margt til að finna upp eitthvað merkilegt að gera með einhverjum.

:)

1 comment:

Anonymous said...

Hehe ég fór nú bara að hlægja þegar ég las þessa færlsu.