Monday, May 14, 2007

Íbúfen

Ég er búinn að bryðja íbúfen reglulega síðustu daga. Ástæðan er þessi endemis endajaxl sem er eitthvað að ibba gogg. Ég hélt í gærkvöldi að þetta væri búið en annað kom á daginn. Ég gat ekki sofið lengur en í rúman klukkutíma. Ég myndi nú taka sterkar verkjatöflur en ég á þær ekki til og líka verð ég að vera með kollinn í lagi. Hef þurft að greina ansi flókna tónsmíð upp á síðkastið.

Það er ætlun mín að taka þátt í Christian Lindberg básúnukeppninni sem verður haldin í Apríl á næsta ári. Með Christian í dómnefndinni eru Joe Alessi, Michel Bequet og Jörgen van Rijen auk 2ja lítt þekktari básúnuleikara. Helstu stjörnurnar verða semsagt allar í dómnefndinni. Það vantar bara Alain Trudel og þá væri þetta fullkomnað.

Mér finnst fínt að vera búinn að setja mér svona markmið. Markmiðið er að í janúar verði ég búinn að ná þeim stykkjum sem eru í fyrstu tveimur umferðunum í keppninni. Ef það tekst ekki þá hætti ég við þáttökuna og fer bara að hlusta í staðinn. Ég ætla nota sumarið mjög vel í æfingar. Reyna eftir megni að halda rútínunni sem ég er búinn að koma upp hér. Vinna í sumar gæti samt komið í veg fyrir það.

Nú fer mikil orka í að leggja lokahönd á undirbúninginn fyrir prófið mitt sem verður 30. maí. Undanfarnar vikur eru búnar að vera skelfilegar fyrir mig. Eftir frábæra daga á Íslandi þar sem ég kom miklu í verk lagðist ég í flensu. Svo datt ég af hjólinu og nú þessi tannavandræði. Ég er nú samt búinn að ná öllum verkunum þannig að nú er bara að koma sér í gott form, andlega og líkamlega.

Það er reyndar eitt tæknilegt atriði sem ég er ekki nógu öruggur á og það er trilla sem er á háa a-inu undir lok BACH fantasíunnar. Ég get gert trilluna en ekki eins og ég vil hafa hana.

Ég ætla annaðhvort að fara út að skokka eða í langan göngutúr núna í morgunsárið. Held að göngutúrinn verði ofan á. Ég er ekki með nógu góðar lappir fyrir skokk, allavega ekki á malbiki.

Það var ekki meira í bili,

6 comments:

Anonymous said...

Frábært að hafa skýr markmið. - Vinna hjá gatnamálastjóra er nú góð fyrir formið ...

Anonymous said...

Vinna hjá gatnamálastjóra er ekki gód fyrir formid. Allavega ekki rétt form. Sumum finnst tad jákvaett ad anda ad sér bensíngufum í 8 klst en ég er ekki einn af teim.

Anonymous said...

er nú að hugsa um vöðvana ...

Anonymous said...

ég líka

Anonymous said...

Ari minn, þú hefur frá mörgu að segja og það er gaman að lesa þetta en nennirðu að hætta að tala um hvað þér er alltaf illt og hvað þú ert veikur?
Punk!

Anonymous said...

Það er rétt, skýr markmið og hugsa hátt, engar málamiðlanir