Thursday, May 10, 2007

Brjálæði

Suma daga getur maður bara ekki slitið sig frá hljóðfærinu, viljandi eða ekki.

Í dag vaknaði ég frekar fyrr en venjulega eða klukkan hálf tíu. Náði góðri upphitun fyrir undirleikstíma sem átti að vera klukkan hálf 12. Aðra vikuna í röð fór ég í fýluferð. Kennarinn var ekki til taks. Hitti hana síðar um daginn og hún baðst vægðar.

Ég var kominn heim aftur fyrir 12 og æfði mig frá 12 til 14. 10 mínútur í senn og 5 mínútna pása á milli. Þá tók ég mér smá hlé vegna æfingar sem ég átti að fara klukkan þrjú. Hann Rolf meðnemandi minn á bassabásúnu mun útskrifast í ár og á útskriftar tónleikunum ætlar hann að spila verk fyrir bassa básúnu og 6 básúnur. Sú æfing gekk bara ágætlega. Við erum 3 klassískir spilarar og 3 jazz spilarar þannig að þetta er skemmtileg samsetning.

Milli fjögur og sex var Low Brass tími. Fyrri klukkutímanum var varið í samspilsverkefni en síðari klukkutímanum var varið í einleik. Ég spilaði fyrsta kaflann í BACH fantasíunni og það tókst mjög vel en fékk að sjálfsögðu viss holl komment.

Strax að loknum tímanum var Raymond með opinn tíma fyrir Dan, strák í undirbúningsdeildinni sem mun bætast við bekkinn á næsta ári. Það var mjög gaman að fylgjast með þeim tíma. Minnti mann á það hvað Raymond getur verið andstyggilegur. Hann hefur samt ekki sýnt mér neina andstyggð í langan tíma núna. Þá er maður örugglega að gera eitthvað rétt.

Klukkan átta fór ég svo að æfa mig með André. Við bentum á staði hjá hvorum öðrum sem mættu fara betur. Markmiðið okkar er að byggja upp sjálfstraust hjá öllum sem við tölum við. Fyrsta verkefnið er Loes.

Rúmlega tíu gáfumst við upp og fórum niður í bæ og fengum okkur pizzu.

Og nú er ég kominn heim og er á bjór númer 2. Það er bara ekki hægt annað en eftir svona dag en að fá sér smá bjór fyrir svefninn. Þetta er fyrirtaks Bavaria flöskubjór.

Ég held barasta að ég fari fljótlega að sofa og vonandi tekst mér að sofna fyrir klukkan 2.

Bless bless.

3 comments:

Anonymous said...

Rétt - brjálæði að borða svona mikið ruslfæði!

Anonymous said...

Sá sem heldur að pizza af ítölskum sið sé ruslfæði ætti að láta athuga í sér heilasellurnar. En það er náttúrulega bara mín skoðun. ;)

Anonymous said...

Gat ekki fundið neina aðra skýringu á fyrirsögninni :-)