Ég held ég geti sagt það án þess að ýkja mikið að kosningarnar nú voru þær mest spennandi sem ég hef orðið vitni af. Til marks um það þá þurfti ég bara tvær 33 cl. kókdósir til að halda mér vakandi. Persónulega varð ég fyrir smá vonbrigðum með að ríkisstjórnin rétt lafði.
Ég sofnaði klukkan 9 í morgun og svaf til hálf 4. Það var nú gott.
Áðan var auðvitað horft á leik Liverpool-Charlton í gegnum Skype. Kveðjuleikur Guðs. Jafntefli niðurstaðan og Robbie skipt útaf áður en hann fékk tækifæri til að skora sigurmarkið. Mjög slæm taktísk skipting að mínu mati. Gaman var að sjá Kewell spila aftur eftir langan tíma og hann jafnaði metin og átti bara góðan leik eftir að hann kom inná.
Pabbi minn er orðinn 49 ára í dag. Bara eitt ár í viðbót og þá er hann orðinn fimmtugur. Gaman gaman. Slæmt að geta ekki verið heima og fengið morgunkaffi með fjölskyldunni.
Nú eftir tæpan hálftíma byrjar leikur Barcelona og Real Betis. Þetta er leikur sem Barcelona verður barasta að vinna og ekkert múður. Þessi leikur er það síðasta sem getur bjargað þessari helgi. Ég meina það.
Ísland féll úr Evróvision, Ríkisstjórnin hélt, Liverpool gerði jafntefli og ég með endajaxlapirring. Ef Barcelona nær ekki viðunandi úrslitum er mikil hætta á því að ég leggist í þungt þunglyndi sem mun vara alveg til hádegis á mánudag.
Ég á að vera með fyrirlestur í greiningu á nútímatónlist á þriðjudaginn. Ég er nú vel undirbúinn og er búinn að fletta hulunni af mörgum gullgerðarleyndarmálum Casterede í þessari básúnusónötu sem ég valdi mér.
Ég keypti alveg stjarnfræðilega gott brauð um daginn. Tijger heitir það. Það er hreinn unaður að borða það með fyrirmyndarostinum sem fæst hér og marmelaði.
Ég er búinn með bókina sem ég var að lesa. Alltof stutt en mjög góð.
:)
Sunday, May 13, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Þín var sárt saknað í afmælishábítnum - en þú bættir það upp með sterkri skype-innkomu ....
Post a Comment