Tuesday, May 1, 2007

LIVERPOOL!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Það hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum að Liverpool sló út Chelsea í Meistaradeild Evrópu nú fyrr í kvöld. Leikurinn var mjög góður og spennandi fram úr hófi. Ég er hálf raddlaus sem stendur vegna tíðra öskra.

Nú vona ég að AC Milan takist að leggja Man. Utd af velli á morgun. Þá yrði vikan fullkomnuð með básúnufestivalinu.

Ég neita því ekki að það yrði gaman að sjá Liverpool-Man. Utd. í úrslitunum en ég efast stórlega um að taugarnar mínar myndu þola það.

Aukagreinarnar eru víst bara kenndar út maí mánuð í skólanum mínum. Júní mánuðurinn verður þá frekar rólegur. Bara píanópróf og básúnutímar. Það er freistandi að kíkja kannski eitthvað til Skandinavíu en peningarnir leyfa það ekki alveg. Korfu er nóg í sumar.

Það gladdi mitt gamla Liverpool hjarta að sjá Robbie Fowler fá að spreyta sig síðustu andartök leiksins. Honum tókst að skapa eitt dauðafæri fyrir Kuyt en Hollendingnum tókst ekki að nýta sér það.

Ætla að taka á mig náðir.

2 comments:

Anonymous said...

Hér eru líka allir þreyttir eftir þennan blessaða leik. Menn ætluðu af göflunum að ganga.

Þú verður bara í sólbaði í júní til að vera klár á ströndina á Korfú ... ;)

Anonymous said...

Þetta var öruggt allan tímann, við eigum besta markmann í heimi, engin spurning