Thursday, May 17, 2007

Maraþon

Í gærkvöld fór ég í óperuna. Ivan bauð mér frían miða á generalprufuna. Þýsk ópera með hollenskum texta. Ég þurfti reyndar að gefast upp í hléi vegna ýmissa ástæðna.

Ég var skriðinn uppí rúm í gærkvöldi á miðnætti og ég skreið út úr því klukkan 10 í morgun. Byrjaði daginn á að taka tvær sterkar verkjatöflur og setti svo The Two Towers í gang. Sofnaði út frá henni einhvern tímann um hádegið og svaf til þrjú.

Af einhverjum duldum ástæðum er dagurinn í dag frídagur. Enginn skóli og enginn tannlæknir. Þarf að bíða til morguns með að hitta tannlækni en mér er hætt að lítast á blikuna með ástandið við endajaxlana.

Kærastinn er nú í heimsókn hjá Korku þannig að við sambýlendurnir erum eins og svart og hvítt. Hún brosandi útaf eyrum daginn inn og út og ég algjör andstæða.

Nú ætla ég að skella The Return of the King í tölvuna og halda áfram með þetta maraþon mitt.

Bless

5 comments:

Anonymous said...

Það er uppstigningardagur - hemelvaarts dag!

Hinn kristni heimur tekur sér frí af því tilefni. -

Anonymous said...

flottur væll

Ari Hrodmarsson said...

Bróðir kær, haltu þínum barnalegu kommentum fyrir sjálfan þig.

Anonymous said...

haldiði friðinn strákar

Anonymous said...

Ætlar afmælum í þessari fjölskyldu minni aldrei að linna?