Af einskærri tímaofgnótt tók ég upp þá dellu að labba í skólann, með viðkomu hjá ljóshærðum píanókennara til að skila af mér reyktu sjávardýri. Ég var búinn að kortleggja þá ákvörðun að hjóla svo heim úr skólanum. Allt gekk vel þar til ég kom í skólann.
Ég gramsaði í buxnageymslum mínum og mér til mikillar gremju og lítillar gleði fann sá ég fyrir mér lyklana að hjólalásnum liggjandi í aðgerðaleysi í gallabuxunum af Diesel ætt. Vegna þægilegra buxnavals varð ég af þeirri reynslu að labba í og hjóla úr konservatoríum af Amsterdam. Sporvagnar með þversummuna 12 komu mér heim á leið en þrátt fyrir þeirra velvild varð gremja mín ekki minni. Ég tók uppúr vasanum fjarskiptabúnað minn og hringdi í fyrirtæki sem kennir sig við New York en sérhæfir sig í flatbotnungum.
Smjattandi á pizzunni horfði ég á enn einn Star Trek þáttinn. Enterprise er í viðhaldi og Jean-Luc ákveður að heimsækja bróður sinn á gamla fjölskylduheimilinu. Hann á bara einn bróður.
Það eru merkileg tengsl á milli bræðra. Maður sá margt sem maður þekkti af eigin raun. Mikil látalæti. Sýningu á styrk sem maður hefur ekki, allt til að reyna að toppa bróður sinn.
Ég velti því stundum fyrir mér hvernig stendur á því að bróðir minn sé bróðir minn. Það eina sem við eigum sameiginlegt eru foreldrar okkar og Liverpool. Ef við værum ekki tengdir þeim böndum værum við eflaust án vitneskju um tilveru hins.
Ég er sá eldri og hef það í eðli mínu að sjá til þess að yngri bróðir minn hagi sér nú án þess að sverta blett fjölskyldunar. Að mörgu leyti sýndarmennska af minni hálfu og líka smá ánægja sem ég fæ við að pirra hann.
Þótt að blessaður bróðir minn fari nú stundum verulega í taugarnar á mér og að við flugumst á reglulega þegar við erum yngri þá þykir mér mjög vænt um hann. Hann hefur alltaf verið í mínu lífi, svo lengi sem ég man. Fyrsta skýra minningin mín er ekki af foreldrum mínum heldur af honum. Hann lá sofandi og ég horfði á hann og vildi ekki vekja hann.
Nú er unginn floginn úr hreiðrinu til að spyrna í bolta í Danmörku en hann er samt alltaf hjá mér.
Tuesday, September 11, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Æ þetta var fallegt!
Post a Comment