Thursday, September 6, 2007

Undur og stórmerki

Ætli það sé sé samband þar á milli að þegar ég skrifa um draumfarir þá finnst fólki endilega að það þurfi að kommenta? Eða bara tilviljun?

Allavega

Í dag var fyrsti Low Brass tíminn. Hann var bara ansi góður. Í vetur verður því þannig háttað að Perry mun einn sjá um þessa tíma. Sem ég er mjög ánægður með því hann er svo miklu betri spilari en Raymond.

Tíminn fór að mestu í að tala um öndun, kemur á óvart, og hvernig er best að æfa hana. Og inn á milli skutum ég og Perry hvorn annan með orðahríð. En við erum vanir því þannig að það er allt í lagi. Perry kann að taka smá kommentum þótt sumir geti það ekki.

Eftir tímann fór ég svo að borða með Suzanne og Loes og lét til leiðast og horfði á Princess Diary 2 með þeim. Það var æðislegt að horfa á þessa mynd með Loes en hún virðist ansi mikið föst í einhverjum draumaheimi. Og bíður eftir að draumaprinsinn birtist á hvítum hesti. Jæja, fólk verður að fá að trúa því sem það vill. En mér fannst myndin skemmtileg, jafnvel þótt að Kenneth hafi nú sent mér ansi ískyggilegar augngotur.

En nú ætti ég að horfa á einn Star Trek þátt eða svo og fara svo að sofa.

GN

No comments: