Þriðjudagur er fljótt farinn að verða uppáhaldsdagur vikunnar hjá mér. Enginn skóli þá daga og eini dagur vikunnar þar sem ég geri helst ekki neitt sem minnir á tónlist. Er búinn að lesa Fundamentals of Musical Composition eftir Arnold Schönberg en ekki í dag.
Það er algerlega nauðsynlegt að hreinsa hugann af amstri hversdagsins við og við.
Það er skúraveður í Amsterdam. Og þvílíkar skúrir.
Lenti í slíkum skúrum í gær þegar ég hjólaði í skólann. Varð blautur í gegn. Þurfti að vinda nærbuxurnar. Það hefði verið æðislegt að hjóla í svona veðri ef manns hefði beðið heitt kakó og mjúk sæng en mér varð ekki að ósk minni, ég þurfti að fara í Schubert greiningu. Sá tími var reyndar mjög skemmtilegur, fórum yfir framsöguna í ókláruðu sinfóníunni.
Síðar var svo tími með Ivan. Það sem stóð uppúr úr þeim tíma var að hann bannaði mér að spila utanað. Hann sagði að ég yrði að samræma músíkalska getu mína við tæknilegu getu mína, ekki vera alltaf langt á undan með músíkina. Svo sem rétt hjá honum, eins og yfirleitt. Hann minntist aftur á söguna með Slokar, þar sem Ivan átti í sömu vandræðum og ég.
Eftir tímann var ég mjög inspíreraður og æfði mig eins og bandóður maður. Þegar ég leit upp þá var liðinn einn og hálfur tími. Og þeim tíma hafði ég varið í 4 línur af tækniæfingu. En þarf ekki oft að líta á þær línur í framtíðinni. :)
En liggur leiðin í Albert að kaupa smá bakkelsi ;)
Tuesday, September 25, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment