Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá neinum að fyrsta almennilega kvöld vetrarins var í kvöld. Ég á auðvitað við um Meistaradeildina.
Horfði á þrjá leiki í einu á barnum. Liverpool gerði jafntefli við Porto og voru nú bara heppnir að tapa ekki. Porto þurfti reyndar vítaspyrnu til að skora og tókst ekki að nýta sér það að Liverpool var einum færra lungann úr síðari hálfleik.
Chelsea varð sér til skammar eins og stundum áður, mörðu jafntefli á heimavelli gegn Rosenborg. Shevshenko var nánast það eina jákvæða við leik Chelsea.
Stórleikur kvöldsins var leikur Real Madrid og Werder Bremen. Bæði lið spiluðu frábæra knattspyrnu en Real Madrid hafði yfirhöndina hvað mörkin varðaði. Og það voru góðkunningjarnir Raul og Nistelroy sem skoruðu mörkin. Maður leiksins: Diego hjá Werder Bremen. Tæknin til fyrirmyndar og baráttan til eftirbreytni.
Eftir fótboltaveisluna þurfti ég að snúa mér að þessum blessaða kafla úr strengjakvartet nr. 12 eftir Beethoven. Komst að því mér til mikillar ánægju að kaflinn hefur 3 stef, ekki 2 eins og flestir kaflar sem bindast við sónötuformið. Kaflinn inniheldur að auki 2 úrvinnslanir og langt niðurlag. En tæknilega er hægt að segja að hann sé í sónötuforminu þó farið sé ansi frjálslega með efnið.
Úff, þarf að vakna í síðasta lagi klukkan hálf átta á morgun.
Wednesday, September 19, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Fyrsta kvöldið hafði nú sínar afleiðingar
Pennalatur í dag?
Post a Comment