Thursday, September 6, 2007

Fyrsti skóladagurinn

Minn fyrsti eiginlegi skóladagur var í gær. Fór í 3 tima, Analyse Romantic Music Major, Analyse Old Music Major og í píanótíma.

Ég fékk sms í morgun þess efnis að það er búið að leggja niður þann hóp sem ég er í í Old Music greiningunni. Kemur í ljós hvert framhaldið verður.

Það var gaman í píanótímanum. Eina píanótengda efnið sem ég var með var píanóparturinn af Lars-Erik Larsson konsertnum fyrir básúnu. Ekki það auðveldasta en kennaranum mínum var alveg sama. Hann vildi að ég læsi það í gegn. Hann er að reyna að kenna mér listina að feika mig í gegnum meðleiks-parta.

Í gærkvöldi fór ég í rúmið klukkan 21:00 og svaf til tæplega 8. Mig dreymdi meðal annars að ég væri Cabaret dansari.

Ég fer í einn tíma í dag, klukkan 16:00 er Low Brass tími. Ég ætla bara að taka því nokkuð rólega þangað til. Halda áfram að lesa bókina Ellefu mínútur eftir Paulo Coelho. Hún náði góðum tökum á mér frá fyrstu blaðsíðu.

Dow Jones

No comments: