Þriðjudagar eru frídagar hjá mér. Það að sjálfsögðu gefur mér þann munað að geta farið á barinn á mánudagskvöldum, sem ég og gerði í gærkvöldi.
Ég var mættur í skólann klukkan 8 :45 í gær og fór þaðan klukkan 22:36. Átti að mæta í tíma klukkan 9:00 en komst svo að því að hópurinn sem ég var settur í var kenndur á hollensku. Ætlaði nú ekki að láta það yfir mig ganga. Talaði síðar við töflustjórann sem upplýsti mig um það að það væri einungis einn hópur kenndur á ensku í þessu fagi og í hann kemst ég ekki sökum Low Brass tíma á sama tíma. Verð að taka 20. aldar greiningu síðar.
Þetta er annað námsefnið sem fellur niður hjá mér á þessu ári. Greining á gamalli tónlist hefur líka gefið upp öndina. Á reyndar eftir að fá staðfestingu á því. Þá verður Ivan nú ánægður, honum fannst ég hafa ansi mikið að gera á þessu ári.
Ég fór í fyrsta tímann minn í "Hinum magnaða Schubert" í gær. Það er stór hópur sem ætlar að fylgja þessu fagi og ég kannaðist ekki við marga. Endalausir söngvarar í þessum hóp. Ég varð fyrir smá vonbrigðum. Ég átti von á því að þetta væri kúrs þar sem maður fengi að takast á við að greina mismunandi verk eftir Schubert en í staðinn eru þetta bara fyrirlestrar um verk og störf tónskáldsins, reyndar áhugavert en maður getur nú samt lesið sér til um það á netinu. Áfanginn er reyndar valáfangi og þeir áfangar eru yfirleitt ekkert mjög kröfuharðir. Mikið af fólkinu virðist vera þarna til að fá auðveldar einingar. Því er nú verr of miður.
Ég náði fjórum góðum skorpum á básúnuna í gær. Er mjög sáttur við það. Um kvöldið lá síðan leiðin á Lusthof eins og áður var getið. Kvöldið endaði svo með því að ég, Johan og Kenneth fórum á Burger King og deildum svo leigubíl eftir það. Ég var einhvern veginn ekki í stuði til að hjóla í 45 mínútur á þessum tíma og undir þessum áfengisáhrifum. Eitthvað sem maður má ekki leyfa sér oft. Enda var þetta algjör undantekning.
Það eru 2 nýir tenor básúnuleikarar í skólanum. 18 ára fyrsta árs nemar. Daan og Marten. Fínir strákar enn eru ekki alveg að skilja merkingu þess að vera básúnuleikari. Vona samt að það taki ekki langan tíma að berja það inní hausinn á þeim. Eitt básúnudeildarpartý ætti að vera nóg.
Það fer að líða að því að ég fari að leggja af stað í skólann. Hef nægan tíma þannig að ég er að spá í að labba meirihluta leiðarinnar. Þarf líka að koma við hjá einni manneskju í leiðinni.
;)
Tuesday, September 11, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Kvedja fra Færeyjum! -
Post a Comment