Saturday, September 15, 2007

Taka 2

Gerði það í fyrsta sinn síðan ég man eftir mér að borga mig inná 2 tónleika með nákvæmlega sömu efnisskrá. Og í bæði skiptin fór ég í hléi. Ekki annað hægt þegar Jörgen er búinn að murka allt út úr básúnunni sem hægt er. Varð að spila smá.

Ég og Grímur höfðum gert það plan að þegar ég kæmi heim þá myndum við panta okkur pizzu í síðbúinn kvöldmat. Ég kom heim um ellefu. Tók upp símann og hringdi á pizzustað. Þar svaraði mér strákur og sagði að það væri búið að loka. HA!?! Búið að loka klukkan 23:07 á föstudagskvöldi. Er ekki í lagi með fólk? Ég var nú samt kurteisari við strákinn en mig langaði til.

Ég dó ekki ráðalaus og flýtti mér á netið til að finna anna pizzustað. Fann íslenskuvæna Domino´s staðinn í Diemen. Ætlaði að grípa upp gemsann en sá þá að staðurinn lokaði klukkan 22:00.

Nú er ég endanlega búinn að missa allt álit á Hollandi. Þegar það er ekki hægt að fá pizzu fyrir miðnætti er eitthvað meira en lítið að.

Ekkert var opið. Við urðum að láta okkur nægja sína hvora brauðsneiðina með smjöri og spægipylsu. Og fara í rúmið með sultarverki. Það mætti halda að ég væri fastur í sögunni um Oliver Twist.

Slæmur endir á annars mjög góðum degi,

Ari

1 comment:

Anonymous said...

Það væri nú kannski hægt að elda eins og einu sinni...