Tuesday, September 4, 2007

Frídagur

Stundataflan mín býður uppá þann þægilega kost að engir tímar eru á þriðjudögum. Það óneitanlega bætir fyrir þann skandal að ég þurfi að mæta í 20. aldar greiningu klukkan 9:00 á mánudögum. Ég virðist hafa lent í hollensku mælandi hópnum í þeirri grein. Þannig að eflaust get ég sloppið við þennan fáránlega tíma.

Í gær tók ég mér fullan æfingadag. Tæpir 3 tímar af teknískum æfingum og svo renndi ég yfir Lars-Erik Larsson líka, til að sjá hvar hann stendur hjá mér. Ég gat spilað glettilega mikið af honum miðað við að ég hef ekki kíkt á hann í 1 og hálft ár. En hann þarfnast nú mikils viðhalds og viðbætingar.

Lusthof var síðan áfangastaður kvöldsins. Það var orðið langþráð að komast aftur á Lusthof með brassleikurunum. Það var drukkinn bjór og spjallað um allt og ekkert og svo hjólaði ég heim. Og auðvitað varð ég bláedrú á leiðinni. En svaf samt mjög vel og lengi.

Fór í Blokker í dag í þeim erindagjörðum að kaupa mér geisladiskastand. Sú áætlun stóðst ekki. Ekkert þar til sem minnti á geymslu undir geisladiska. Skelli mér bara í IKEA við tækifæri. Á meðan er allt bara út um allt í herberginu mínu. En ísskápurinn er voða skipulagður og fínn.

Hér á Julianaplantsoen er þvottavél inni í íbúðinni. Og er ég búinn að setja í eina vél. Á eftir að taka úr henni, geri það á eftir.

Ég er hvorki meira né minna en í 5 greiningaráföngum í skólanum í ár. Þrír þeirra eru í allan vetur. 2 sitthvoru megin við jólin. Ekki furða að fólk líti á stundatöflu mína og taki andköf. En eitthvað verður maður nú að gera við tímann sinn. Og hvað er betra en að stúdera músík uppí sófa með heitt kakó?

tjá

1 comment:

Anonymous said...

Vel skipulagður ísskápur - það er lífið!