Thursday, September 27, 2007

Útvarpsstjarna

Var að enda við að hlusta á útvarpsþátt þar sem ég var að lýsa básúnunni. Ansi mikið klippt og skorið en ánægjulegt áheyrnar. Hægt er að hlusta á þáttinn á síðu ruv. ruv.is og þátturinn heitir Ætti ég hörpu.

Mér til óumdeilanlegrar óánægju var ekki spilað rétt upptaka af verkinu sem ég valdi. Það var rétt verk en ekki í flutningi Christian Lindberg. Ég lét útvarpið hafa þá upptöku. Þetta eru vörusvik. Mér heyrðist þetta vera upptakan með Alain Trudel, hvernig svo sem útvarpið hefur komist yfir þá upptöku.

Þetta er einfaldlega ekki sama verk þegar Trudel spilar það. Hann spilar það svo sem ágætlega en ekki í sömu deild og Lindberg. Enginn er í sömu deild og Lindberg á alt-básúnu. Þarna missti fólk af guðdómleikanum sem það annars hefði fengið ef útvarpið hefði spilað þá upptöku sem ég lét það hafa.

Ófyrirgefanlegt.

1 comment:

Anonymous said...

Þetta kom vel út - þó að Trudel ætti í hlut! - Góða skemmtun um helgina.