Tuesday, September 18, 2007

Meistaradeildin byrjar í kvöld

Í dag er þriðjudagur og líkt og undanfarin ár merkir sá dagur byrjun sterkustu deildar evrópu, Meistaradeildarinnar. Nokkrir mjög spennandi leikir í kvöld, Porto-Liverpool, Real Madrid-Werder Bremen og AC Milan-Benfica meðal annarra. Leikirnir byrja 20:45 að hollenskum tíma, þannig að ég ætti nú að geta gert það sem ég þyrfti að gera fyrir það.

Ég þarf ekkert að mæta í skólann á þriðjudögum og er ekki viss um hvort ég nenni í dag. Er með básúnuna heima og með æfingadempara ætti ég að geta spilað eitthvað smá án þess að nágrannarnir hringi á lögregluna.

Ég er haldinn þeim leiða lesti að raka mig aldrei fyrr en skeggið er farið að angra mig. Það er kannski ekkert slæmt við það annað en að þá tekur svo langan tíma að raka sig. Kannski ég reyni bara að safna svona einu sinni, eins og þegar ég fór í endajaxla aðgerðina. Ég er samt ekki fyrir það að takmarka skeggvöxtinn við ákveðinn stað á andlitinu, það er alskegg eða ekkert skegg.

Ég svaf ótrúlega vel í nótt. Eins og ungbarn, bara miklu lengur. Draumarnir voru ekki af verri endanum en eins og svo oft þá man ég ekki neitt af þeim.

Ég sendi foreldrum mínum myndir af herberginu mínu í gærkvöldi.

3 comments:

Anonymous said...

Myndirnar slógu í gegn!

Anonymous said...

einhvern veginn komu þær (myndirnar) samt ekki á óvart

Ari Hrodmarsson said...

Miði á Sinfó: 2000 kr
Smóking: 60.000 kr
Taka Melchior fram yfir Liverpool: Óbætanlegt