Saturday, September 22, 2007

Tiltekt

Er búinn að vera að taka til í hátt í 3 klukkutíma núna. Herbergið lýtur núna út eins vel og mögulegt er miðað við hvað ég er með mikið af dóti og lítið af plássi til að geyma það. Búinn að sópa og ryksuga, henda út rusli og sitthvað fleira. Ég sé allavega í gólfið núna. Fín tilbreyting frá nærbuxunum og sokkunum sem huldu það alveg þar til í dag.

Ég ofgerði mér gjörsamlega í gær. Var á fullu frá 5:30 til 23:45. Ætlaði nú að vakna snemma og þar sem ég var nú sofnaður um miðnætti þá hélt ég að ég þyrfti ekki að stilla vekjaraklukkuna. Ég vaknaði við það að pabbi hringdi í mig um klukkan hálf tólf. Þetta var samt þarfur svefn. Áleit að þetta væri tákn frá æðri mætti um það að ég ætti að taka mér frí frá básúnunni í dag og ákvað að taka til í staðinn.

Eftir þetta ár á ég eftir að taka þrjú aukafög til að vera kominn með allt sem ég þarf á að halda. Ef ég hefði komist í þá áfanga sem ég vildi þá myndi ég klára það allt á þessu ári. En svona er lífið. Kannski líka eins gott því nú get ég bara einbeitt mér þeim mun meira að hljóðfærinu. Ég er nú einu sinni í básúnunámi hérna og tími til kominn að fara að haga sér sem slíkur. Ivan minnti mig á það svona óbeint í gær.

Liverpool-Birmingham í dag, Barcelona-Sevilla í kvöld. Mahler 5 á morgun og Man. Utd-Chelsea í eftirrétt. Fullkomin helgi. Er samt orðinn dáldið seinn til að fara á barinn fyrir Liverpool. Kannski fæ ég að fylgjast með honum í gegnum skype hjá pabba. En á Barcelona leikinn fer ég, þó hann byrji nú seint eða klukkan 22:00 á hollenskum tíma.

En nú er það sturta.

No comments: