Þá er maður nú loksins kominn heim til sín. Fór að heiman hálf níu í gærmorgun og kom heim klukkan 19:02 í dag.
Ástæðan fyrir fjarveru minni frá heimili mínu var skólapartý sem haldið var í gær. En áður en ég fór á það sá ég Barcelona jarða Lyon 3-0.
Eitthvað hefur kæti mín yfir þessum úrslitum smitað út frá sér því þótt ég væri órakaður geislaði sjarminn af mér.
Þar sem þetta er opinbert blogg þá fer ég ekki nánar út í það, en ég skemmti mér alveg ágætlega. Þrátt fyrir leiðinlega og of háværa tónlist á stundum.
Í dag fór ég svo í fyrsta undirleikstímann minn og fyrsta einkatímann með Ivan. Bæði mjög gefandi og Ivan fannst mér hafa farið fram yfir sumarið. Ég hef enn smá vandamál en engin meiriháttar.
Í Low Brass tímanum spilaði ég svo fyrstu tvo kaflana í Larsson konsertnum fyrir bekkinn. Það gekk bara nokkuð vel, sérstaklega seinni kaflinn en þá var ég fyrst í alvöru kominn í samband við tónlistina sem ég var að spila. Perry leiðbeindi mér svo aðeins og gaf mér leiðir til að bæta mig enn meira. Haft var á orði að intónun mín hafi verið fullkomin. Held mér samt niður á jörðinni hvað það varðar.
en sæ
Thursday, September 20, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
ég hélt að sumir væru ekki svona viðkvæmir fyrir sínu opinbera bloggi, hvað gerðist í partýinu?
Post a Comment