Sunday, November 11, 2007

Allt á hvolfi

Karmað er ekki með mér þessa dagana. Liverpool vann reyndar, öllum að óvörum, en Barcelona sýndu sögulegt getuleysi og lutu í gras gegn spræku liði Getafe.

Tónleikarnir sem ég talaði um í gær fóru fram í dag. Hitastigið í kirkjunni var 4 gráður. Ekkert hitnar undir þeim kringumstæðum nema með hjálp Vodka sem ég asnaðist til að skilja eftir heima. Verkið gekk svo sem ágætlega miðað við aðstæður en fegnastur varð ég þegar það var búið.

Kirkjan er í miðju Rauða hverfinu og til að komast til kirkju þurfti ég að ganga götur sem ég hef látið vera að ganga áður fyrr. Frægu gluggagöturnar. Varla olnbogarými í þröngum húsasundunum og beggja vegna blasa við portkonur af öllum stærðum og gerðum. Held að í dag hafi verið latinó stund. Ekki mjög fínt það sem fyrir augu bar. Minnti mig á sjóræningjaþorp í karabíska hafinu á 18. öld.

Ég er allur að braggast núna. Held samt ég verði að vera skynsamur og halda mér innandyra á morgun, en þá ætti ég nú að vera algjörlega kominn yfir þessi veikindi. Er með vott af hita núna og smá hálspirring.

Ég er ótrúlega pirraður útí Frank Rijkard fyrir að hafa sólundað skiptingunum sínum svona. Puyol stóð sig frábærlega í vinstri bakverði í fyrri hálfleik en þá þurfti Frank að skipta Thuram útaf fyrir Zambrotta og Puyol fór í miðvörðinn. Jafnvægið breyttist í liðinu við það. Ekki bætti úr skák að Ronaldinho var klárlega haltrandi fyrstu 15 mínútur síðari hálfleiks. Bojan og Giovanni eru allt of líkir Ronaldinho og Messi til að bæta einhverju við svona leik. Eiður er öðruvísi og hefði eflaust getað breytt einhverju.

Alltaf auðvelt að gagnrýna samt þegar maður situr á bar með ömulegri hollenskri dægurlaga tónlist í botni.

Er hættur

No comments: