Varð að sleppa tímanum með Ivan í dag. Gat ekki skipt um tíma við neinn og svo var ég fárveikur í dag. Varð samt að fara í skólann svona til að heilsa uppá nokkra kennara. Hápunktur dagsins var svo æfing í Oude Kerk í miðju rauða hverfinu. Eins og Hollendingum sæmir var engin kynding í þessari 2ja hektara kirkju. Í 2 klukkutíma þurfti maður að spila með skorpnar varir og blóðlausa fingur og eina til að ilja sér við tilhugsunin um andlitið á Loes þegar ég stakk upp á því að við myndum kíkja inní BDSM dótabúð.
Mér til mikillar ánægju var There is something about Mary í sjónvarpinu í kvöld. 3 auglýsingahlé reyndar drógu aðeins úr ánægjunni og lengdu myndina um 20 mínútur. Þessi mynd er klassík og ef einhver hefur ekki séð hana er viðkomandi á rangri hillu í lífinu. Engar alhæfingar í gangi samt.
Á morgun eru síðan tónleikar með þessu modern sjitti eins og 20. aldar tónlist er kölluð dags daglega. Spila í 2 verkum, eitt hálf-æft, annað ekki.
Það verður spennandi að taka þátt í því, vona bara að það verði einhver smá kynding í gangi. Ekki hægt að bjóða manni að spila við svona aðstæður. Hitastigið var ca. 7 gráður.
Er eitthvað svo þreyttur þannig að ætla að skella mér í bælið.
Friday, November 9, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment