Wednesday, November 7, 2007

Niðurslag

Fór í skólann í dag. Mátti eiginlega ekki við því að missa af rómantíska greiningaráfanganum. Hann er rómantískur að því hann fjallar um tónlist sem samin er á vissu tímabili. Það er ekkert rómantískt við áfangann, hvernig gæti það líka verið, tíminn er klukkan 9:30 á miðvikudagsmorgni, ekki beint sexý.

Tíminn var svo sem í lagi en mér slóg niður hvað heilsuna varðar þannig að ég þurfti að fara á eftirlaun heim til mín. Er ekki æðislegt þegar maður þýðir beint úr enskunni?

Í gærkvöldi var The Mask í sjónvarpinu sem var gjörsamlega æðislegt og ekki versnaði kvöldið við það að pabbi sendi mér stanslaus sms til að láta mig vita hvernig Liverpool gengi, samkvæmt síðustu fregnum var Liverpool að vinna 8-0. Það hefur eflaust ekki breyst eftir það.

Í kvöld verður Barca að spila en ég verð að halda mig heima í kvöld. Á morgun þarf ég að mæta á 2 æfingar þannig að ég hætti ekki á neitt.

Ég var að vakna af veikinda-síðdegis blundinum mínum og mig dreymdi ansi skemmtilega hluti. Af einhverjum ástæðum vann öll fjölskylda mín á farandþvottahúsi sem hafði nýlega endurheimt fyrra stolt eftir ítrekaðar hryðjuverkaárásir af hendi framsóknarmanna í Kópavogi.

Segi þetta gott.

1 comment:

Anonymous said...

Þú verður greinilega að fara hægar í rómantíkina!