Er búinn með alla músíkalska orku sem stendur. 5 klst af æfingum í dag og klukkutíma píanótími. Ekkert getað æft mig sjálfur, en svona er þetta. Var að koma heim rétt í þessu. Næ að slappa aðeins af áður en Liverpool-Porto byrjar en til tilbreytingar get ég horft á leikinn heima hjá mér. Nederland 3 sýnir leikinn beint. Ég ætla að láta það eftir mér að panta pizzu með leiknum.
Í gær skrapp ég til Rotterdam til að hitta nokkra kunningja og ég náði að sjá smá af masterclassinum með George Wiegel, aðalbásúnukennaranum í Rotterdam. Það var athyglisvert. Mér finnst alltaf smá yfirgnæfandi að sjá hvað það eru margir básúnunemendur í skólanum þarna.
Úff ég hef einhvern veginn ekki frá neinu að segja. Greinilega hentar mér betur að blogga á nóttunni þegar heilinn er meira vakandi.
Dé
Wednesday, November 28, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment