Það var loksins að ég gat farið í skólann. Leyfði mér reyndar að sofa út, aldrei heillvænlegt að byrja of geyst eftir veikindi. Fór í síðasta hefðbunda Schubert greiningartímann. Nú er bara ein ritgerð eftir, sem á að skila í seinasta lagi 1. mars. Ég er að spá í að skrifa um ófullgerðu sinfóníuna og reyna að varpa ljósi á hve byltingarkennt verk það er.
Það var æðislegt að geta byrjað að æfa sig aftur. Náði 90 mínútum í dag. Leið mjög vel allan tímann þrátt fyrir að hafa varla snert hljóðfærið í viku. Eyddi smá tíma í Ferdinand David konsertinn, 1. kafla. Mjög skemmtilegt verk samið á kaflaskilum í tónlistarsögunni, þegar rómantíkin var að byrja. Verkið er undir miklum áhrifum af 3. sinfóníu Beethovens og er 2. kaflinn eiginlega ein stór tilvitnun. Kannski smá ýkjur en það er greinilegt hvaðan áhrifin koma.
Ferdinand David var frambærilegasti fiðluleikari síns tíma. Uppi rétt fyrir tímabil Paganini. Mendelsohn skrifaði fiðlukonsert sinn fyrir áðurnefndan virtúós. Sagan segir að Mendelsohn hefði lofað því að semja básúnukonsert fyrir fyrsta básúnuleikara hljómsveitar sinnar en gugnaði á því og lét þess í stað konsertmeistarann Ferdinand David semja verkið. Það er lán í óláni.
Ef tónskáld á borð við Mendelsohn hefði samið básúnukonsert þá væri saga hljóðfærisins örugglega önnur. Verk David er reyndar töluvert kynngimagnaðra en verk Mendelsohn frá þessum tíma. Ekki endilega betri músík en óumdeilanlega meiri kraftur. Mendelsohn stjórnaði frumflutningnum.
Tók mig til í dag og hlustaði á allan disk Thomas Horch, Posaune Europe. Fínir sprettir inná milli en í heildina ansi dauft. Of margir brassleikarar falla í þá gryfju að láta allar nótur vera svo fallegar að músíkin verður út undan. Blöndunin á milli básúnu og píanós var heldur ekki nógu góð.
Á sunnudaginn ætla ég að leggja Belgíu undir fót í einn dag. Christian Lindberg verður að stjórna og spila með Royal Flemish Orchestra í Antverpen. Tónleikarnir byrja klukkan 11 þannig að ég þarf að taka daginn snemma og ná lestinni klukkan hálf átta frá Amsterdam Central. Tekur aðeins 2 tíma í lest til Antwerpen og engar óþægilegar lestaskiptingar. Hef aldrei komið til Belgíu svo ég muni eftir.
Kynding í hollenskum húsum er til skammar. En þetta er samt aðeins skárra en í fyrra. Í fyrra náðist aldrei upp ylur í íbúðinni.
Nú er að hefjast í skólanum project þar sem jazz og klassík vinna saman. Þar að segja innan brassdeildarinnar. 2 spilagrúppur verða settar saman, básúnukór og brassband með bæði klassískum og jazz spilururum. Ég er í báðum grúppunum. Eini klassíski spilarinn í báðum grúppum. Ég missti af fyrstu æfingunum í síðustu viku vegna veikinda en á morgun mæti ég á mína fyrstu æfingu með básúnukórnum. Projectið nær hámarki fyrstu vikuna í desember en þá eru hvorki meira né minna en 4 tónleikar og 3 saman daginn. Ef maður verður ekki í góðu formi eftir þá viku þá er eitthvað að.
Er reyndar dáldið fúll yfir þessari æfingu á morgun. Þriðjudagar hafa verið mínir frídagar þar sem ég hef slappað af. Hef reyndar ekki fengið að slappa af á þriðjudegi í ansi langan tíma. Enn verra er að æfingin er klukkan 10 að morgni. Þannig að besti tími dagsins er hafður af manni svo maður hafi einhverja orku á æfingunni.
Maður nær einfaldlega ekki að slappa af vitandi að maður þarf að drífa sig á fætur fyrir allar aldir. Ætla nú samt að sofa eitthvað. Of stutt síðan ég var veikur til að ég leggi í að sleppa úr nótt.
Leið svo vel í gærkvöldi þegar ég var að semja og svaf líka mjög vel, vitandi það að ekkert ræki á eftir mér. Af hverju er það þannig að þegar maður þarf virkilega að fara snemma að sofa þá fyllist maður af eirðarleysi? Ég líka kvíði því að þurfa að vakna við vekjaraklukkuna, og eflaust í kolröngum svefnfasa sem á eftir að skila sér í þvi að ég verð úrillur í viku.
Úff, ég er ekki nógu glaðlegur núna. Verð að gera eitthvað í því, Family Guy eða Simpsons ættu að redda því.
Lifið heil.
Tuesday, November 13, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Flott að ná heilum sunnudegi í hinni fögru Antwerpen!
Já Wu-Tang eru ad koma med nýjan disk, thú kannski kíkir á hann og hættir ad hlusta á thennan hestalort sem thú ert alltaf ad røfla um. úrhrak....
kv. Lille bror
Post a Comment