Sunday, November 18, 2007

Grasker

Að loknum stuttum æfingadegi rölti ég heim til Korku og hitti þau skötuhjú. Fékk að borða kvöldmat með þeim í leiðinni. Dásamleg graskerssúpa sem tók um klukkutíma að matreiða. Reyndar á leiðinni til Korku kom ég við á vídjóleigu og leigði 3 klassískar myndir. The Graduate, What´s up Tiger Lily? og Trainspotting. Get verið með myndirnar í viku. Horfði á The Graduate áðan. Sú mynd hefur nú haft bein og óbein áhrif á ansi margar myndir. Gaman að sjá Dustin Hoffman á sínum yngri árum. Svo merkilegt að sjá líka hvað útlit kvikmynda hefur breyst mikið. Margt sem gerðist þarna væri túlkað sem ofleikur í dag.

Auðvitað þurfti hann pabbi minn aðeins að lappa upp á fúguna sem ég gerði. Mozart sagan endurtekur sig. Litli strákurinn gerir eitthvað en auðvitað yfirfer faðirinn verkið og leiðréttir barnaleg mistök. Höfundareinkennin halda sér þó.

Ætla að fá mér samloku

No comments: