Allir sem koma til Hollands taka eftir því hvað Hollendingar eru mikið fyrir það að hafa allt til sýnis. Aldrei dregið fyrir glugga til að gefa fólki ekki ástæðu til að halda að eitthvað ósiðsamlegt sé í gangi. Íslendingurinn ég á mjög erfitt með að venjast þessu. Sérstaklega þar sem á Íslandi horfist maður nær undantekningarlaust í augu við einhvern sem mætir manni. Bara til öryggis ef það skyldi vera fjarskyldur ættingi. Ekki jafn mikið um það í miljónasamfélagi Hollendinga.
Það sem fólk gerir á sínu eigin heimili er þeirra einkamál og kemur engum við. Ég gat nú samt ekki annað en stoppað til að kíkja aftur þegar ég sá virðulegan mann af eldri kynslóðinni horfa á ljósbláa lesbíumynd. Hann var nú ekki byrjaður að strokka slátrið, hefði væntanlega dregið fyrir til þess.
Alla leiðina heim var ég að velta þessu fyrir mér. Þessi maður er greinilega orðinn svo samhljóma þessu afskiptaleysi hjá hollensku þjóðinni að honum finnst ekkert varhugavert við það að horfa á svona efni fyrir opnum tjöldum. Síðan pældi ég aðeins meira. Er eitthvað að því að horfa á ljósbláa mynd fyrir opnum tjöldum? Ég eiginlega komst að þeirri niðurstöðu að það er ekkert að því.
Á þeim tímum sem við lifum á þar sem kynlíf er orðið að mestu söluvöru veraldarinnar þá er ljósblá mynd álíka gróft efni og kona sem lét sýna á sér brjóstaskoruna á áttunda áratugnum í Hollywood kvikmynd.
Ég ætla nú samt ekki að hætta mér í þessa blessuðu klámumræðu.
Á sunnudagsmorguninn fer ég til Antwerpen í Belgíu á tónleika með Lindberg. Þarf að taka lestina héðan frá Diemen klukkan 6:58. Verð kominn til Antwerpen klukkan 9:26. Tónleikarnir byrja klukkan 11:00. Er kominn með miða. Það er nú munur að vera kominn með eigið VISA kort og þurfa ekki alltaf að gera allt í gegnum foreldrana.
Í kvöld pantaði ég mér pizzu og horfði á The Usual Suspects. Æðislegt að sjá hana aftur. Handritið er eins nálægt fullkomnum og hægt er. Pizzan var líka góð. Er búinn að takmarka mig við eina pizzu á viku. Það er alveg nóg og þá hefur maður líka eitthvað til að hlakka til.
Grímur fer til Parísar á morgun til að kaupa sér bassaklarinett. Auðvitað heimsækir hann Jóa og Sigurjón í leiðinni. Hann verður fram á fimmtudag. Mín stundarskrá leyfir því miður ekki svona ferðalög, annars væri ég svo til í að fara með.
Í dag var æfing í Jazz-klassíska brass prógramminu. 3ja tíma æfing með 10 mínútna hléi. Kjafturinn var hættur að virka í lok æfingarinnar. Fór heim skömmu síðar.
Er orðinn þreyttur. Kíki aðeins á sjónvarpið og ef ég er heppinn þá sofna ég fyrir framan það.
Saturday, November 17, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Góðan dag, góða nótt ...
Post a Comment