Saturday, November 10, 2007

Bara vinir

Ég veit að ég sagðist vera að fara að sofa rétt áðan en þegar ég var að afklæðast til að koma mér í náttfötin þá hringdi Marlies.

Við spjölluðum smá saman en svo minntist ég þess að ég hafði boðið henni að snæða með mér kvöldmat annað kvöld, að loknum tónleikunum í gömlu köldu kirkjunni. Þá heyrði ég stelpuhnátuna segja mér hvað henni þótti ég vera skemmtilegur og frábær en vildi helst halda því þannig að við myndum bara hittast fyrir slysni í skólanum. Við áttum eftir 10 mínútur af samtalinu eftir þennan örlagahnykk. Þær 10 mínútur var hún hlæjandi en ég var eins og trúður, grét að baki brandaranna.

Það væri nú gott ef fólk myndi taka sig til og segja virkilega það sem því finnst. "Getum við bara ekki verið vinir?" merkir ekkert annað en "Ég myndi ekki taka eftir því þótt þú myndir fara til Afríku til að brjóstfæða munaðarlaust ungbarn." "Mér finnst þú æðislegur en ég vil ekki fara of geyst." merkir að sama skapi "Þú ert frábær en tilhugsunin um þig án klæða kemur mér til að kasta upp."

Það kaldhæðnislega við þetta allt er að ég hef aldrei leyft mér að íhuga eitthvað meira en vináttu milli okkar tveggja þrátt fyrir athugasemdir ýmissa þess efnis að viðkomandi fljóð væri ansi heit fyrir mér.

Þetta sannar bara enn og aftur að kvenfólk nýtir sér annað fólk. Ég er tilvalinn til að koma henni til að hlægja og bæta sjálfstraustið hjá henni þegar á þarf að halda.

Nú verð ég samt að játa að ég get aðeins talað um mína reynslu. Ég er alls ekki að draga kvenkyns ættingja mína niður í svaðið. Við sitjum uppi með hvort annað hvort sem er ;)

Jæja, ég held ég hætti núna áður en ég segi eitthvað sem ég mun verulega sjá eftir. Þá á ég við um verulega.

Og ég hef líka setið á mér að skrifa viðkomandi stelpu tölvupóst þar sem ég rek fyrir henni staðreyndir, orsakatengsl og augnagotur og kem henni í skilning um að hún sé í blússandi afneitun og ef hún fattar það ekki sjálf þá er ég fegin því að sjá hana bara við og við. (Maður lærir af mistökum sínum.)

Ari

No comments: