Vsídnamnen hfaa kimost ða þierri nuðirtsöðu ða satfaröð í enistuköm oðrum skitpir liltu mlái firyr þraðóan mansnhielnan. Smat vrikra þsesi afðerð ekki fyrir alla. Aðiens 55 prósnet gtea liseð úr svnoa satfarulgi.
Áfram verður haldið með samþykkta stafsetningu.
Ég er að semja fúgu núna. Nota stef úr þjóðþekktu lagi sem var notað á minningarverðan hátt í Tár úr Steini í leikstjórn Hilmars Oddssonar. Fúgan fylgir nú ekki ströngustu reglum barrokksins enda hef ég aldrei lært þær reglur. Fékk hugmyndina frá Glenn Gould, hverjum öðrum. Það er erfitt að koma svona fúgu saman. Sérstaklega þegar stefið býður ekki uppá marga harmóníska möguleika. Ég reyni að halda mig við sem ómblíðasta tónmál. Aðal og fylgistef eru til staðar og comesinn er rétt svar, en ekki tónalt eins og Bach gerir iðulega.
Fyrr í kvöld fórum við Grímur á myndina Knocked up. Kemur manni til að hugsa aðeins um það leikrit sem það er að eignast barn. Hvað þá þegar það kemur á óvart. Myndin sprenghlægileg en kemur manni eins og áður sagði til að hugsa aðeins. Þeir sem hafa ekki ánægju af því að hlægja ættu ekki að fara á þessa mynd. Ef einhverjir hafa ekki ánægju af því að hlægja þá þurfa þeir verulega að endurskoða sitt líf.
Það er alveg ótrúlegt hvað fólk getur stundum verið snobbað hvað varðar grín. Margir gera úr því að finnast einhver ákveðin tegund af gríni ekki fyndin. Oft er það eitthvað prinsipp að finnast Spaugstofan ekki fyndin. Held að það sé sama vandamálið að fólk gerir of miklar kröfur.
Er ég sá eini sem er píslarvottur fyrir hönd gleðinnar í lífinu?
Nú á síðari árum er ég farinn að skilja gagnsemi síðra nærbuxna. Þær falla vel að líkamanum en eru samt teygjanlegar. Fjölskyldudjásnin fá að njóta sín svo um munar. Klaufin er líka það vel þróuð að slátrið lendir aldrei fyrir utan þótt hefðbundar nærbuxur gleymist í hita leiksins.
jæja, er að fara að sofa. Búinn að berjast við þessa fúguskömm í bráðum 2 klst og er kominn með hálfa mínútu af tónlist. Og á eflaust eftir að endurskoða megnið af þessum 30 sekúndum. En rosalega langar mig til að læra að semja almennilegar fúgur. Verð einhvern veginn að koma skólanum mínum í skilning um það að það er ekkert skrýtið við það að læra kontrapunk þó maður sé ekki í barrokk deildinni.
Monday, November 12, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment