Sunday, September 16, 2007

112

Jafntefli hjá Liverpool. Horfði á leikinn í gegnum Skype með pabba. Eins gott að restin af deginum var betri.

Hitti Grím niður í bæ um hálf sjö. Fengum okkur hálfmána og áttum gott spjall og fengum að lokum kaffi og heitt súkkulaði í boði hússins.

Þar næst lá leiðin á Hagen-Das ísbar þar sem við fengum okkur eftirrét og kældum okkur niður áður en við fórum í bíó.

Við horfðum á myndina Ratatoullie okkur til mikillar ánægju. Ég var að sjá hana í annað skiptið en Grímur í hið fyrsta.

Síðan var það bara bjór í búð og heim í bjór.

Og nú er komin nótt.

Maður þarf nú ekki að gera mikið til að hafa mjög ánægjulegan dag ;)

1 comment:

Anonymous said...

Þetta þarf ekki að vera flókið...