Wednesday, September 5, 2007

Aktívitet

Ég gerði þau mistök þegar ég ætlaði að fara að sofa áðan að hlusta á SOLO eftir Berio í flutningi Lindbergs. Það er ekki beint tónlist sem maður sofnar út frá. Hef sjaldan verið jafn glaðvakandi. Sem væri svo sem í lagi ef ég þyrfti ekki að vakna eftir tæpa 4 klukkutíma.

En ég var að skoða netið áðan og rakst á ansi góða túlkun af hinu fræga Adagietto Gustav Mahlers. Þetta er myndband sem einhver hefur gert þar sem brot úr ýmsum kvikmyndum mynda litla sögu. Fyrir þá sem ekki vita þá samdi Mahler þennan 4. þátt 5. sinfóníu sinnar fyrir konu sína, Ölmu Mahler. Hún var 20 árum yngri en hann og þrátt fyrir að hún elskaði hann var hún nú ekki á því að láta hann koma fram við sig hvernig sem væri.

Í bréfum Mahlers frá tímanum þegar hann er að semja sína 5. sinfóníu má greina mikla tortryggni í garð konu sinnar. Og sú tortryggni átti rétt á sér. Alma átti sér elskhuga. Því komst Mahler að þegar hann opnaði óvart bréf til konu sinnar. Gustav Mahler var mikil tilfinningavera og fannst þetta eins og gefur að skilja mjög sárt. Hann úthúðaði konu sinni og sagði orð sem ekki verða tekin til baka. Hún hlustaði á hann og sagði ekkert. Horfði á hann sakbitinn en samt með heift í augnaráði sínu.

Gustav var á þessum tíma farinn að finna fyrir þeirri veilu sem dró hann ekki mörgum árum síðar til dauða. Hann sá að endinn væri nær en hann vildi og hann vildi ekki leyfa að eitt framhjáhald að viðbættum reiðilestri myndi ræna hann þeirrar ástar sem honum fannst hann eiga rétt á.

Gustav nýtti sér tónlistarfærni konu sinnar á þann hátt að hann lét hana kópera fyrir sig þær nótur sem hann gerði. Alma var upprennandi tónskáld þegar þau kynntust en Gustav bannaði henni að semja og sagði víst heldur niðrandi orð um konur í leiðinni. En þessi tengsl þeirra hjóna notaði Gustav sér þegar hann samdi Adagietto kaflann. Hann skrifaði í tónlist fegurstu ástarjátningu og fyrirgefningabeiðni sem hefur birst í mannkynssögunni.

Alma skyldi það sem Gustav setti í tónlist sína vegna takmarkana hans á svo mörgum öðrum sviðum.

En eftir þennan inngang vona ég að þið njótið þessa myndbands.

3 comments:

Anonymous said...

Það á að SOFA á nóttunni!

Anonymous said...

Afskaplega er ég treyttur á tví ad fá svona aulakomment tegar ég blogga. Svefn er algert aukaatridi tegar madur er fullur andagiftar!!

Anonymous said...

Takk fyrir þessa fallegu sögu!