Sunday, September 9, 2007

Flaggað í hálfa stöng

Ég fékk þær fréttir í dag að einn ástsælasti fótboltaþjálfari Íslands sé látinn. Þetta er reiðarslag fyrir unnendur íslenskrar knattspyrnu en Ásgeir Elíasson var lifandi goðsögn.

Ég hafði þann heiður að fá að læra leikfimi undir hans leiðsögn og var áhugi hans á að miðla fróðleik sínum svo smitandi að jafnvel einfaldur sundtími varð að upplifun.

Ég eyði ekki fleiri orðum í þetta blogg.

Hvíldu í friði Ásgeir.

1 comment:

Anonymous said...

einn allra skemmtilegasti leikmaður og ekki síður þjálfari sem Ísland hefur alið. Hans verður sárt saknað.