Monday, September 17, 2007

Ágætis dagur

Ég var hvorki fyrr né síðar en klukkan hálf 9 mættur í skólann. Það þýddi að ég var vaknaður klukkan 7. Sem hefði svo sem verið ágætt ef ég hefði ekki sofnað um klukkan 5. En mér tókst furðu vel að vakna. Var greinilega í léttum svefnfasa þegar vekjaraklukkan hringdi.

Tók létta upphitun með Kenneth og æfði mig svo slatta. Dagurinn endaði svo með Schubert áfanganum. Hann var mjög skemmtilegur í þetta skiptið. Fórum aðeins í nokkra kafla úr sinfóníum 3,4 og 5. Kennarinn er nú ansi lunkinn við að lesa upp úr raddskrá. Ég þarf að laga þann þátt hjá mér, eða miklu frekar að verða bara betri á slaghörpu.

Var alveg búinn á því eftir tímann þannig að ég tók bara næstu lest heim. Ég treysti mér ekki að hjóla í skólann í morgun vegna úrhellisrigningar. Það er alskýjað sem stendur og lítil andagift sem svífur yfir síkjum Amsterdam á svona degi.

Nú get ég skemmt mér við að horfa á eitthvað skemmtilegt. Semja kannski eitthvað lítið. Er kominn með uppí kok af því að greina í dag. Er að greina einn af síðustu strengjakvartetum Beethoven. Formið er svona tilbrigði við sónötuform. Það þarf virkilega að hljómgreina verkið til að komast til botns í því, er kominn langleiðina með það. Klára það á morgun. Er reyndar að gera miklu meira en ég var beðinn um að gera. Ég átti bara að skipta verkinu upp í nokkra hluta. En mér er lífsins ómögulegt að sleppa því að greina verkið almennilega.

Er orðinn svangur,

1 comment:

Anonymous said...

Thad er bara bull hvad thú ert ad læra heillandi hluti í skólanum!
Ég var í fótbolta frá 10-12, datt í frokost og fór sídan ad hlusta á fyrirlestur um svædisvørn í hálftíma. Svo lyfti ég yfir hundrad kílóum í lyftingasalnum ( í samanløgdu ad sjálfsøgdu) og fékk mér kvøldmat!
Faxe Kondi Sauna í kvøld.