Virtúósinn Jörgen van Rijen frumflutti básúnukonsert Theo Verbey í kvöld með Concertgebouw hljómsveitinni. Konsertinn bar hið merkilega heiti "Lied" og vísaði til syngjandi eiginleika básúnunnar, og Jörgen fór létt með það. Hann sýndi nýja takta hvað varðaði mið og lága registerið, þvílík fegurð. Inná milli voru svo auðvitað djöfullegir virtúósahlaup sem einungis Jörgen og Christian komast vel frá.
Að loknum konsertnum fylltist ég af þvílíkri löngun til að spila á básúnuna að ég sleppti Kurt Veil sinfóníunni sem var eftir hlé. Var reyndar búinn að heyra hana á miðvikudaginn með hljómsveitnni á kynningartónleikum.
Nóg í bili
Lifi Jörgen
Friday, September 14, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Frábært!
Post a Comment