Annað kvöld, fimmtudagskvöld, mun Jörgen van Rijen frumflytja nýjan básúnukonsert með Concertgebouw hljómsveitinni. Ég spjallaði aðeins við Martin Schippers í dag, einn af básúnuleikurum hljómsveitarinnar og hann sagði mér að konsertinn væri algjört brjálæði en Jörgen spilaði hann listavel, eins og maður býst nú orðið við af honum. Mjög spennandi.
Ég sofnaði klukkan átta í kvöld. Vaknaði klukkan 1 við útsmogna moskítóárás, hef ekki tekist að festa blund aftur. Og er aðeins of vel vakandi til að geta trúað því.
Íslendingar unnu víst í kvöld. Gott hjá þeim. Ætlaði nú að horfa á leikinn en hann var ekki sýndur á netinu. Kom á óvart þar sem spánarleikurinn var sýndur á netinu, á ruv.is.
Fékk það verkefni að reyna að finna út formið á einum af síðustu strengjakvartetum Beethoven. Ekki heil brú í þessu verki við fyrstu kynni en mér er farið að takast að koma þessu niður í eitthvað skiljanlegt. Spennandi að vita hvort kennarinn verði sammála mér, en allt á byrjunarstigi ennþá.
Píanótíminn í dag var mjög skemmtilegur. Lærði nýja ásláttartækni sem er ekki jafn orkufrek og sú sem ég hef verið að nota. Er að æfa Chopin eins og er, tungumál sem ég kann illa en reyni mitt besta.
Ætla að lesa núna
Thursday, September 13, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Eftir hvern er konsertinn? sumir halda að flytjandinn sé aðalmálið..
Þarftu ekkert að læra nýja ásláttartækni á lyklaborð fyrst þú skrifar svona á nóttunni .... ?
Post a Comment