Faðir minn kom í heimsókn til mín síðastliðinn föstudag. Við erum búnir að hafa það fínt. Fara í IKEA, út að borða, elda, horfa á Barcelona. Í kvöld er það svo bíó.
Við keyptum nokkra nytsamlega hluti í IKEA. Bókahillu, herðatré, pönnu svo eitthvað sé nefnt. Í dag settum við saman hilluna og ég raðaði í hana. Það er smá pláss eftir í hillunni og verður gaman að geta keypt eitthvað og haft pláss til að geyma það.
Ég var að sýna pabba áðan nokkrar skyggnur úr Not the 9 o´clock news. Ultum á gólfið af hlátri.
Faðir minn er nú að leggja sig. Er þess vegna að blogga frekar hljóðlega. Vill ekki vekja hann.
Barcelona er að spila besta fótbolta í heimi eins og er!
Sunday, September 30, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Pabbastrákur!
Post a Comment