Friday, September 21, 2007

RCO

Var að koma heim af tónleikum Concertgebouw hljómsveitarinnar þar sem Bruch fiðlukonsertinn og Alpasinfónía Richard Strauss voru prógrömmuð. Bæði verk voru frábærlega spiluð og sérstaklega Bruch fiðlukonsertinn. Alpasinfónían byrjaði í 3. gír en smám saman komst hljómsveitin á skrið og í mestu hápunktunum mátti sjá að Mariss Janson lét hljómsveitinni eftir öll völd. Hann lagði niður hendurnar og hlustaði á það sem fyrir eyru bar.

Annar einkatíminn með Ivan á jafnmörgum dögum átti sér stað í dag. Hann gekk mjög vel þrátt fyrir langan dag í dag. Var vaknaður klukkan 5:30 eins og áður er getið og var mættur í skólann áður en opnaði. Náði að æfa mig í 4 tíma samtals áður en tíminn var. Það skilaði sínu þótt ég hafi byrjað tímann hörmulega en var enn dáldið eftir mig eftir að ég hitti vissa manneskju. Förum ekki nánar útí það.

Nú ætla ég bara að fara í bólið. Ætla að vakna snemma á morgun og vera mættur snemma í skólann. Þýðir ekki annað fyrst næsti tími hjá Ivan er á mánudaginn. Það verður líka langur dagur. Fyrsti tíminn hjá mér er klukkan 9:30 og tíminn með Ivan er klukkan 19:00. Ég gæti hugsað mér til glóðarinnar ef ég fengi borgaða yfirvinnu, en því er ekki að heilsa.

Guten nacht

1 comment:

Anonymous said...

Þú meinar goede nacht