Klukkan er 06:07 og ég er búinn að vera vakandi í rúman hálftíma. Vaknaði við moskítóflugu sem var að ég held að reyna að brjóta sér inngöngu innað ístaðinu í vinstra eyra mínu. Þar sem ég var enn vakandi 20 mínútum síðar ákvað ég að fara bara á fætur. Get tekið því bara dáldið rólega, farið í sturtu, borðað morgunmat og lagt svo af stað í skólann.
Ivan var alveg sama með það að næsti tími okkar sé í dag, síðasti tími í gær. Hann setti mér fyrir verkefni sem hefðu vel getað enst út vikuna. Ég þyrfti helst að ná svona 4 klst æfingatörn fyrir tímann sem er klukkan 18:00. Er í tímum frá 13:00 til 16:00 þannig að það gengur ekki upp, þar að segja ef ég æfi mig skynsamlega.
Ég ákvað að raka mig í gærkvöldi, þetta var orðið ágætt með skeggið. Að vanda þá skar ég mig. Það er ein ástæða þess að ég raka mig á kvöldin, þá eyðilegg ég ekki þann dag hvað spilamennsku varðar. Nú eftir nóttina er ég bara orðinn fínn.
Ég er undrandi á því að ég skuli ekki muna draumfarir mínar í nótt. Moskítóflugan hefur vakið mig á kolröngum tíma. Finnst ég vera hálf innantómur fyrir vikið og ekki eins rólegur og ég er oft á morgnana eða þegar ég vakna, hvað sem klukkan nú er.
Nú ætla ég bara að skella mér í sturtu. Það er aðeins byrjað að kólna hérna í Amsterdam, mánuði fyrr en í fyrra.
Tjá
Friday, September 21, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Er ekki hægt að komast á námskeið í rakstri?
Post a Comment