Jói trompetleikarinn klári frá París kom í heimsókn í gær og verður fram á mánudag. Í gær gúffuðum við slatta af pizzum en í dag hef ég lítið getað verið með honum.
Eldsnemma í morgun þurfti ég að fara í skólann. 3ja tíma æfing með básúnukvintet án hlés. Henni lauk hálf eitt. Ég hafði planað að fara að kópera lyklana hans Gríms og fór í hraðbanka til að taka út smá pening. Öllum kortum mínum var hafnað þannig að ég er peningalaus eins og er. Alltaf skulu þessi námslán þurfa að láta bíða eftir sér. Engin leiga borguð á meðan.
Þar sem ég var ekki með neinn pening áleit ég að best væri bara að fara heim þar sem væri nú eitthvað til að borða og fannst líka skynsamlegt að taka því rólega og reyna að ná þessari flensuskömm úr mér. Tónleikar á morgun og maður vill svona helst vera í fínu standi. Er með krónískan hita þessa dagana og sé ekki fyrir endan á því.
Klukkan farin að ganga 12, best að fara að taka á sig náðir.
Verð að muna eftir því að kaupa kassa af bjór við tækifæri, óþolandi að eiga ekki bjór þegar maður þarf á honum að halda.
Saturday, November 3, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Voðalegur táradalur er þetta!
Kassa af bjór? Hvernig í ósköpunum getur maður þurft á því að halda?
Post a Comment