Lét loksins verða að því að gefa mér tíma til að taka afrit af lyklunum hans Gríms. Nú mun lífið verða mun þægilegra. Það var reyndar lán í óláni að ég er búinn að vera rúmfastur nær allan tímann sem ég hef verið lyklalaus en núna er ég allur að braggast. Verð samt heima í dag svona til vonar og vara. Gærdagurinn var viðvörun um það hve rólega maður verður að fara af stað eftir veikindi.
Mun líklegast missa af tímanum með Ivan á morgun, hef ekkert getað spilað síðan á sunnudag hvort sem er og tími yrði bara sársauki. Þarf samt að mæta á æfingu á morgun fyrir tónleika sem fram fara á laugardaginn. Og ég þarf að sjálfsögðu að mæta í þau bóklegu fög sem eru á morgun. Einn blússandi galli við það að vera bara einu sinni í viku í fögum er sá að ef maður missir af tíma þá líða 2 vikur á milli tíma hjá manni. Það er allt of mikið.
Thursday, November 8, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Hó - bara fjör í Amsterdam!
Flóð hjá ykkur í Niðurlöndum?
Post a Comment