Monday, November 19, 2007

Wikipedia

Upp á síðkastið hef ég sökkt mér ofan í alfræðiorðabókina sem á heima á netinu. Wikipedia. Maður fær kjarnann af því sem maður er að leita að. Ég er dáldið að pæla í virkni hugans þessa dagana og tungumáli líkamans. Það er ansi mikið af upplýsingum sem maður getur lesið á þessum góða vef.

Mismunandi sjónarhorn eru iðulega gefin. Hlutleysi virðist vera yfirgnæfandi á vefnum. Allt hávísindalegt.

Það var eitt sem ég rakst á sem er kallað flæði. Var búinn að heyra aðeins um það í sálfræði á sínum tíma í MH en nú las ég þetta af miklum áhuga, ekki af þörf eins og maður þarf að gera í skóla.

Maður upplifir flæði þegar það sem maður er að gera heltekur huga manns og nær ekkert annað kemst að. Flæðið felur í sér athöfn sem er hvorki of auðveld né of erfið. Maður sér markið en maður þarf samt að hafa fyrir því að komast þangað.

Ef maður veit þetta þá getur maður skipulagt sig þannig að maður upplifir svona stundir eins oft og mögulegt er. Til dæmis þegar þarf að taka til þá er ekki sniðugt að ákveða að hreinsa allt í íbúðinni, það er of mikið fyrir venjulegt fólk. Betra er að skipta íbúðinni niður í minni svæði og þegar hvert svæði hefur verið tekið í gegn á taka sér smá hvíld. Vinna í þrepum. Og hafa verður í huga að fólk er mismunandi.

Ég til dæmis á það til að þreytast alveg svakalega í fatabúðum. Er ekki fyrr kominn inn en ég þarf að finna mér eitthvað sæti. Af þeim sökum kaupi ég mér aldrei föt, það er ekki fyrr en ég er dreginn á eyrunum af foreldrum mínum því allar buxurnar mínar eru orðnar götóttar. Það er allt of yfirgnæfandi fyrir mig að kaupa mörg föt í einu en fyrir marga aðra er það ekkert mál.

Þeir sem hafa meiri getu þurfa að sína þolinmæði þeim sem hafa minni getu. Það þýðir ekkert að kvarta yfir því, það tapa allir á því. Það er auðveldara að draga úr afköstum sínum en að gera meira en mögulegt er fyrir mann sjálfan. Það er skárra að einum leiðist smá en að annar fái þá tilfinningu að hann sé minni máttar. Þetta er allt spurning um að byggja upp sjálfstraust. Sá sem leiðist smá í stærðfræði og finnst vera farið hægt yfir er greinilega með sterka stöðu í greininni. Á sama tíma er einhver sem finnst vera farið of hratt yfir efnið og á kannski ekki jafn auðvelt með tölur og hinir. Það réttlætir samt ekki það að hann fái minnimáttarkennd og verði pirraður á því að skilja ekki neitt á sama tíma og allir aðrir skilja það. Það getur haft hörmulegar afleiðingar eins og við höfum séð bæði í Bandaríkjunum og nú síðast í Finnlandi.

Í dag gengur það eiginlega ekki upp að þeir hæfustu lifi af. Því að nú geta hinir sem orðnir eru pirraðir á því að hafa lent undir í samfélaginu gripið til vopna og tekið tugi manns með sér í gröfina. Með því að byggja upp sterkar sjálfsmyndir hjá ungu fólki er hægt að bjarga mannslífum.

Um daginn las ég þá sorgarfrétt að ung stúlka í Bandaríkjunum hefði fyrirfarið sér eftir að hafa verið göbbuð á netinu. Það er allt hræðilegt við þessa sögu en það versta finnst mér að stúlkunni hefði verið leyft að komast í þá stöðu að hafa svona slæma sjálfsmynd. Ef sjálfstraust fólks er gott þá hafa svona hlutir minni áhrif á það. Ef sjálfstraustið er ekki til þá getur það haft hörmulegar afleiðingar.

Kaffitími

1 comment:

Anonymous said...

Þetta er allt mikið rétt hjá þér Ari. - Hressileg áminning fyrir pirraða og óþolinmóða!!